The Reykjavik Connection in 39 Steps

Justice

What happened? Coup attempt.

Where? In Iceland.

When? 1972-1976.

Who? Elements from the very secretive  Icelandic security system. Intelligence service with no official name. In this case supervised by US agents.

Why? To prevent termination of US military base in Iceland.
read more:

 www.30nine.net


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Þetta er nú meiri vitleysan....

FORNLEIFUR, 25.11.2019 kl. 05:40

2 Smámynd: FORNLEIFUR

"In 1972 his deputy Ásgeir Friðjónsson [14] became the only judge of newly formed narco court, FED (FíkniefnaDómstóllinn) who basically did plain fundamental things like wiretapping, spying on and interrogate people, from where K Pétursson operated and found his victims in this case, although he was never the courts officially agent. The similarity with the then also newly formed Nixon’s DEA in 1972, with its heavily infested CIA connectivity is noticeable [15][15a]." 

Þetta plagg er svo etnócentrískt og mikið naflapillerí, að það er hlægilegt. Hvernig væri að læra örlitla heimildagagnrýni?

FORNLEIFUR, 25.11.2019 kl. 06:24

3 Smámynd: FORNLEIFUR

 "Anyhow it was not a good idea to try to blackmail or otherwise make those like Nixon and Kissinger angry with their nasty mind and lust for revenge as Chile was about to find out in that same year 1973 [21]." 

Höfundar þessarar ritgerðar, á afburðarlélegri ensku, eru víst heldur ekki lausir við "nasty minds".

FORNLEIFUR, 25.11.2019 kl. 06:34

4 identicon

 Leitt að ég verð að taka undir orð Fornleifs. Eftir þriðja yfirlestur og árangurslausa leit að heimildum eftir tilvísunum féllust mér hendur.

Myndefnið er þó með ágætum, það er samt ófyrirgefanlegt að leggja úrklippur yfir texta sem á að skipta máli.

Prófarkalestur virðist ekki vera í lagi heldur, strax í þriðju málsgrein fyrsta þreps er fyrsta setningin ambaga af verstu sort. Óskiljanleg með besta vilja - að "hvarf tveggja einstaklinga hefði ekki átt sér stað án svokallaðs Klúbbmáls."  Orsakasamhengi er ekkert skýrt frekar, það er eins og ætlast sé til að lesandi sé staddur í hugum höfunda og gleypi staðhæfingar hráar. Nöfn á þekktum og minna þekktum mönnum eru sett fram eins og stimplar, frekari skýringar ekki í boði.

Mannshvörf á Íslandi eru mörg óútskýrð og sum dularfyllri en önnur. Þau eru oft erfið rannsóknar og því miður hefur íslensk lögregla staðið sig afleitlega í afgreiðslu þeirra. Getgátur hafa verið á sveimi um sum frekar en önnur, að hvörf Guðmundar og Geirfinns séu sérstaklega hönnuð til að steypa ríkisstjórn landsins er fulllangt seilst í trúgirni.

Menn hverfa af þremur ástæðum: 1 Af slysni, slysförum

                               2 Af ásettu ráði, viðkomandi fyrirfer sér

                               3 Af annarra völdum, morð eða manndráp

Þegar mannshvörf eru skoðuð á fyrst að skoða nánasta umhverfi og aðstæður viðkomandi. Hver sá vk síðast? Hvernig er samkomulag vk og hans nánustu? Hvaða vegsummerki eru á síðustu stundu vk? Rétt er að í tilfelli Guðmundar og Geirfinns voru vinnubrögð lögreglu svo slök að það gæti vakið grunsemdir ef það væru óvenjuleg vinnubrögð, en svo var ekki.

Kristján Pétursson hataðist við Framsóknarflokkinn og hugsaði honum þegjandi þörfina eftir að hafa verið snuðaður um viðurkenningu eftir olíumálið forðum á Keflavíkurvelli. Reyndar fékk hann hálfgerða refsingu sem hann taldi runna undan rifjum framsóknarmanna í æðri embættum. Hann hafði lengi verið að leita að átyllu til að klekkja á starfssemi Klúbbsins (sérstaklega vegna tenginga við Framsóknarflokkinn) í nokkur ár þegar hann sá leið til þess með þessum mannshvörfum og lagðist í það af öllum kröftum. Fékk m.a. Njörð Snæhólm og snillingana í Keflavík með sér í lið. Þeir brutu öll viðmið og forskriftir á rannsóknum með þjónkun við þráhyggju Kristjáns. Símtöl voru ekki rannsökuð í máli Geirfinns, fólkið í kringum hann var allt tekið trúanlegt og allt í góðu? Bíll hans virtist ekki skipta neinu máli heldur. Ef þessi rannsókn lögreglunnar í Keflavík væri ekki skráð mætti halda að hún hefði verið skálduð eins og allar tilgátur seinna meir. Þegar Klúbbmenn höfðu fengið frelsi eftir meðferðina í Síðumúla sá Kristján þó að best væri að láta sig hverfa sjálfan - frá rannsókninni og láta aðra um að breiða yfir og leysa úr flækjunni. Störf fjölda manna voru í húfi, til þess að bjarga þeim þurfti fellandi dóma. 

Gudmundur Einarsson (IP-tala skráð) 12.9.2022 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og sautján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband